Hugarheimur Unu
14.08.2006 02:06:48 / bunan

Akureyri

Oh ég veit aldrei hvernig ég á að byrja þessi blogg... Hæ?

Hvað um það... Er bara að láta mér leiðast á sunnudagsnótt og datt í hug að blogga. Ég fékk frí í 2 daga í síðustu viku þannig ég gat skroppið til Akureyrar. Það var víst eitthvað ódýrt flug þangað þannig við Maren flugum saman í litlu rellunni á miðvikudagskvöld, svo þegar við vorum lent var haldið beint í Brynjuís og svo á kertafleytingu þar sem ég hitti hana Helenu. Hlustuðum á afar skemmtilega ræðu sem einhver virkilega smámæltur maður fór með og fleyttum svo nokkrum kertum á Pollinum. Svo tókum við smá rúnt út að Dalvík og reyndum að ná sólsetrinu sem tókst nokkurn veginn...

Fimmtudagurinn fór bara í hangs og nokkra rúnta á Akureyri, við Maren keyrðum örugglega allar mögulegar götur í bænum og löbbuðum þónokkrum sinnum um Strikið, fengum eitraðan mat í bakaríinu og svo Brynjuís auðvitað... Svo skruppum við á jazztónleika um kvöldið með pabba... Afskaplega gaman. Og svo héldum við nú bara heim á föstudagsmorgninum...

Var svo að vinna alla helgina, mikið stuð. Skrapp í sund í dag... Salalaugina til tilbreytingar, ekki búin að fara annað en í Laugardalslaugina síðan ég flutti í hverfið. Svo er mín í fríi á morgun og fer svo í endajaxlatöku á þriðjudaginn... Ohh afhverju þarf að draga allar tennurnar mínar úr mér, nánast enginn sem ég veit um hefur þurft að fara í þessar fjárans endajaxlatökur... En þarna verða þessir tveir síðustu teknir úr mér þannig þá verður þetta vesen vonandi búið... Svo verður mín bara í veikindafríi í 3 daga held ég, er svo líka búin að redda mér fríi á Menningarnótt þannig þetta verður ágæt vika!

En ég held ég hafi þetta ekki lengra, þarf víst að vakna einhverntíman á morgun þó ég sé ekki að vinna í fyrramálið. Svo að; Au revoir (í tilefni myndarinnar sem ég var að horfa á, Before Sunset sem gerist í París)!


Brynjuísinn góði...


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 17:35:29 / bunan

Náði bóklega!

Vúhú! Náði bóklega prófinu :D Bara ein villa í seinni hlutanum, engin í fyrri 8| Bjóst ekki alveg við þessu, búin að vera í nettu stresskasti í dag... En þetta fór þó allt vel að lokum :) Svo reyndar rétt eftir prófið lentum við í smá umferðaróhappi, einhver keyrði á þónokkrum hraða beint á opna hurð á bílnum okkar! En ég hugsa nú að við höfum verið í rétti, hann keyrði allt of hratt og ég held hann hafi alveg gert sér grein fyrir því. En við skulum ekki hugsa of mikið um það...

Svo er ég semsagt komin heim frá útlöndunum, kom á mánudaginn en átti samt að koma á sunnudaginn en eitthvað danskt fatlað flugfélag sem við áttum að fljúga með frá Róm til Köben ákvað bara að seinka öllum vélunum sínum til að græða helling af peningum og pirra ennþá fleira fólk! 5 fokking tíma seinkun þannig við misstum af vélinni okkar frá Köben og heim. En svo reddaðist það nokkurn veginn, við gátum breytt fluginu okkar heim en það kostaði nú slatta... En við eigum náttúrulega að fá þetta bætt, það þýðir bara ekkert annað:!: En svo gátum við nú tékkað töskurnar okkar inn og farið aftur niður í miðbæ Rómar að eyða þessum 5 tímum og fundum þetta fínasta net-café með sjúklegri loftkælingu og vorum þar örugglega hátt í 2 tíma.

En svo vorum við aðallega að túristast í Róm, sá helling af merkilegum byggingum eins og Colosseum, Vatikanið, St. Péturskirkju, Forum romanum og ýmislegt sem maður kannaðist við úr Rómaveldisbókinni síðan í 3. bekk. En við fórum líka aðeins á ströndina í Fregene þar sem við gistum, en það var bara svo sjúklega heitt, fór uppí 38 gráður, og það var ekki hægt að labba á sandinum á ströndinni, hann var svo heitur... En svo fórum við líka til Toscana þar sem eitthvað fólk sem við þekkum átti bústað eða réttara sagt höll, hjúds hús og og lóð í kring... Það var bara næs þar, reyndar var ógeðslega kalt einn daginn og þrumur og sjúklegar eldingar, sem komu annars á nánast hverju kvöldi...

En jæja ég nenni nú ekki að rekja alla ferðasöguna í gegn, þeir sem hafa áhuga á að heyra smáatriðin geta leitað til mín. :lol: Hendi kannski nokkrum myndum inn við tækifæri, hvur veit.

Helgin verður awesome hjá mér, vinna alla daga! Ohh ég sem ætlaði mér að fara norður :( En maður verður víst að fórna sér fyrir þessa vinnu... Það eru allir að fara einhvert nema ég... Og það á ekkert eftir að vera að gera í sjoppunni um helgina, allir út úr bænum. En ef ég fæ eitthvað frí í næstu viku vorum við Maren að spá í að skreppa norður. Ég krossa fingurna...

Annars er ekkert annað að frétta... Í gær hitti ég Helenu og við skruppum í sund þó að veðrið væri ekkert frábært, svo í gærkvöldi var bekkjarsystrahittingur og svo hitti ég Steinar... Í fyrradag fór ég með múttu og Maren á Nauthólsvík í góða veðrinu og í hittifyrradag fórum við Maren í sólbað á Austurvelli, um að gera að nýta sér góða veðrið :)

En það er víst kominn matur svo ég segi bara Ciao!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 06:52:26 / bunan

Going to Rome

Jæja thá er mín bara alveg á leidinni til Rómar :!: Fríid mitt ekki nema hálfnad... Ohh ég nenni ekki ad fara aftur ad vinna :( Vinna alla verslunarmannahelgina thannig ég kemst ekki til Akureyrar eins og ég ætladi... Ømó.

En ég er búin ad gera alveg helling thessa viku... Heimsótti ýmsa ættingja og svo fórum vid til Rømø á strønd og til Legolands og svo skruppum vid mamma til Kolding ad versla... Svo var bara tjillad í hitanum, búid ad vera alveg upp í 33 stiga hiti hérna og thad verdur sko ekkert skárra í Róm! Allavega spád í kringum 31-33 grádur næstu daga... Stud. Já í gær vorum vid adeins ad spóka okkur um í Køben, skruppum á Strikid og svo rétt nádi ég Fisketorginu ádur en thad lokadi og nádi ad versla slatta í H&M thar :D Ætti núna ad geta spjarad mig í hitanum tharna úti :P

En jæja mútta kemur á hverri stundu, hún var ad skutla Emmu og stelpunum uppá vøll og svo fer okkar vél um hádegid... Thannig ég tharf vist ad thrifa eitthvad herna hjá frænku minni ádur en hún kemur... Svo ad blessó en bara í bili thó :P


Víj gaman ad fljúga...


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 23:43:09 / bunan

I køben :)

Ohh djøfulsins andskotans blogg... Var buin ad blogga bara ansi langa færslu og ætladi ad copya hana adur en eg stadfesti en thurfti endilega ad yta ovart a paste i stadin fyri copy og finn engan undo takk :evil: Tannig tetta verdur bara stutt blogg.

Eg er semsagt komni aftur til Køben med henni muttu minni og Emma, Mist og Isold toku a moti okkur a vellinum. Verdum herna bara tangad til a morgun og høldum ta til Jotlands i hus sem vid faum lanad hja einhverju folki sem verdur heima i okkar ibud a medan... Svo a sunnudaginn eftir ruma viku førum vid til Romar i hitann 8) Tad verdur gedveikt... Ef tad verdur ekki tad heitt ad tad se ekki hægt ad labba um og skoda i bænum, madur verdur nu ad turistast adeins tho ad vid munum lika liggja eitthvad a strøndinni :P

En a leidinni hingad til frænku minnar ta løbbudum vid framhja einhverju husi tar sem thakid var buid ad hrynja :S Gedveikt skritid ad sja thad... Bara gat ofan a husinu :| En thad rett nadist ad ryma husid adur en thetta hrundi tannig allir eru heilir...

En eg nenni nu ekki ad blogga meira i bili, veit reyndar ekkert hvort eg komist eitthvad aftur a netid en eg læt thetta allavega duga i bili :)


Tharna verd eg :)

Unus


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 12:51:29 / bunan

fótaleysi...

Jæja...spurning hvort maður nenni þessu bloggi lengur...

Ég hata iTunes... Hann ruglar allri tónlistinni minni þannig hún verður óhlustanleg :( Og ég finn ekki gamla media player... Þarf nánast að lifa án tónlistar hérna, ekki gaman.

9 dagar til DK, 18 dagar til Rómar! Yay... Þetta verður fjör :) Hlakka svooo til að hitta Emmu og stelpurnar, ég er farin að sakna þeirra svo mikið, þótt það sé ekkert það langt síðan ég sá þær... Svo verður það hitabylgjan á Ítalíu, en þá hangir maður bara á ströndinni eða e-ð svoleiðis skemmtilegt :P

Svo er það Footloose á föstudaginn :) Reddaði mér fríi þá til að geta farið að sjá leikritið með Helenu, enda er þetta eitthvað sem maður má ekki missa af, vona bara að það standist undir væntingum ;)

Dance

Svo er ég reyndar með frí í kvöld líka þannig kannski maður kíki í bíó svona til tilbreytingar :)

Já og svo er ég komin með æfingarleyfi barasta... Reyndar ekkert búin að keyra enn sem komið er, og þori varla að keyra bílinn hennar mömmu afþví hann er svo erfiður... En svo fékk ég líka æfingarleyfi á Sifjar bíl og ég hef prufað að keyra hann áður og það er ekkert svakalega erfitt :) Ætla svo kannski að prufa að keyra austur í bústað á föstudagskvöldið og gista þá eina nótt... En já þetta er allt að koma, nýbúin að klára Ökuskóla 2 sem var andskoti leiðinlegt, þurfti að fara á helgarnámskeið af því ég kemst ekki á kvöldin og við gátum ekki farið uppí Sjóvá  og í veltibílinn og svona... Ég sem var búin að hlakka til þess :( En svo er bara eftir að sækja um próftökuheimild, kannski maður geri það sem fyrst...

En jæja... Hef ekkert að segja þannig kannski maður horfi bara á enn einn One tree hill þátt... Aftur komin með æði fyrir þessu, er að rifja upp 1. seríuna núna :P Svo skemmtilegt...

Celebrities

Lag dagsins: Bettie Serveert - Lover I Don't Have To Love


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 00:04:58 / bunan

Ladídadída

Hellú. Gleðilegan þjóðhátíðardag í gær. Merkilegur dagur hmm... Hitti Helenu niðrí bæ um daginn og við skelltum okkur á Mokka áður en við fórum að rölta um miðbæinn, ekkert svakalega spennandi dagskrá... Horfðum á fullt af gömlum geðveikum bílum rúnta niður Laugarveginn og horfðum svo á smá af einhverri danssýningu. Svo hittum við Sif, Aron, Völu og Maren og svo Steinar og svo þurfti ég bara að fara að vinna, gaman gaman. Var svo að vinna til eitthvað um 11 og að deyja úr þreytu þannig maður fór bara heim og horfði á OC þátt og eitthvað svoleiðis.

Í dag gerði ég bara ekki neitt merkilegt... eða ég skrapp reyndar í sund með Maren en svo fór sólin akkúrat þegar við komum ofan í pottinn. Samt alveg crowded í sundi... Já svo keyptum við okkur jógúrtís eftir sund, namminamm. Ég er eiginlega hætt að borða venjulegan rjómaís, jógúrtísinn bara miklu betri... Súkkulaðijógúrtís með lakkrískurli :P Ojæja nóg um ís. Fór svo að vinna í kvöld, núna er maður bara vinnandi hvert einasta kvöld... Gæti fengið frí annað hvert föstudagskvöld ef ég er heppin... En svo er reyndar þetta ljósmyndanámskeið í næstu viku þannig ég fæ frí úr vinnu í þrjá daga :D Yay... get ekki beðið þangað til annað kveld :) Svo kíkir maður kannski til Helenu eftir námskeiðið fyrst maður er nú einu sinni staddur í Mosfellsbænum...

Já annars er ég ekki búin að gera neitt merkilegt síðustu daga... Bara búin að vinna á kvöldin, byrjaði að vinna í vídjóleigu á fimmtudaginn og það var bara ágætt, fer aftur þangað næstu helgi... Svo átti Maren tvítugsafmæli á föstudaginn og ég óska henni til hamingju með það ;) Þá var borðað hérna saman, klukkan 5 svo að ég næði að borða áður en ég færi í vinnuna... Já núna þarf maður víst alltaf að éta svona snemma, en svo fæ ég líka matarpásu í vinnunni þannig maður verður útbelgdur af frönskum, samlokum og gosi í lok sumars... Ég sem ætlaði í átak í sumar. Sé ekki að það verði eitthvað úr því.

En jæja ég nenni ekki að fara að tuða eitthvað hérna, pæla í að finna mér einhverja mynd til að kíkja á fyrst maður má nú alveg sofa út á morgun eins og alla aðra morgna :) Var líka að pæla í að horfa aftur á 1. seríu í One tree hill, hef bara  einu sinni horft á hana, í fyrrasumar minnir mig og hún er bara svo skemmtileg, er orðin svo leiðinleg núna finnst mér...eða allavega leiðinlegri.

Lag dagsins: The Decemberists - 16 Military Wives


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 10:57:18 / bunan

Hjem igen

Jæja, komin heim á klakann eftir viku í Danaveldi. Bara ágæt ferð fyrir utan það að ég var veik allan tímann... Eyðilagði smá fyrir en maður píndi sig nú samt í nokkrar verslunarferðir á Strikið. Vorum líka túristar í smá tíma og fórum í siglingu og skoðuðum Litlu hafmeyjuna og óperuhúsið og eitthvað svona. Svo var svo geðveikt veður allan tímann og sérstaklega núna um helgina, örugglega kringum 30 stiga hiti. Fórum þá á Amager ströndina sem var bara geðveikt og á sunnudaginn var nánast ólíft, ætluðum í sólbað í einum garði en vorum ekki alveg að meika lognið og hitann þannig við skruppum í Christianiu og löbbuðum þar um og fórum svo til baka og kældum okkur í gosbrunninum hjá Amalienborg. Mæli með því að fara að þessum gosbrunni ef maður er þarna í hitabylgju, geðveikt þægilegt að stinga tánum ofan í vatnið.

Já ég er ekki alveg að nenna að segja frá allri ferðinni í smáatriðum en kannski maður hendi einhverjum myndum inn við tækifæri, er með einhver hundruð af myndum en svo dó myndavélin mín þarna úti en svo fékk ég mér nýja og ég elska hana... Hlakka svo til að fara á ljósmyndanámskeiðið í næstu viku :D Draumurinn að rætast... vonandi :)

En jæja núna tekur bara vinnan við og nú var mér að bjóðast önnur vinna sem er líka kvöld- og helgarvinna eins og á Ruby tuesday þannig þá verð ég bara vinnandi öll kvöld og allar helgar í sumar... Stuð á því :$ Jæja þá ætti ég allavega að eiga slatta af pening í lok sumarsins :)

Jæja ég er að hugsa um að gera eitthvað sniðugra til að losna nú við hausverkinn og vöðvabólguna... Svo að blessó í bili.

Lag dagsins: Mér finnst rigningin góð (vaknaði með það á heilanum í morgun, kannski útaf því að ég var farin að sakna Íslands smávegis :lol: )

sunglasses.jpg


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 03:13:59 / bunan

Daaanmörk

Jæja! Þá er ég loksins farin til Danaveldis. Eða ekki alveg núna á stundinni, ætla fyrst að ná kannski svona 5-6 tíma svefn.

Skemmtið ykkur vel í kuldanum, ég mun* hugsa til ykkar þegar ég geng upp Strikið í sól og 19 stiga hita :klikk:

Bless.

*ekki


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 01:45:09 / bunan

Alene hjemme...

Jæja ég er hérna alein heima og það er ömurlegt... Allir í útlöndum nema Sif og Aron og ég er nánast búin að búa hjá þeim síðustu tvo daga en svo ætlaði ég að gista heima í nótt... Tja kötturinn er reyndar heima en það er nú ekki mikill félagsskapur í honum.

En svo er ég bara eiginlega komin með vinnu, fór í prufu í gær á Ruby Tuesday og fór svo aftur í kvöld og á að mæta um helgina líka... Þannig það verður bara stritað á fullu þangað til maður fer út. Þá verður allavega ágætt að komast út til DK! En þessi vinna... Ég er nú aðallega í því að vísa til sætis og taka af borðunum og þrífa þau en það er samt fjári erfitt, allavega þegar það er mikið að gera. Og maður verður svo geðveikt þreyttur af þessu og svo er sjúklega heitt þarna inni og steikingarfýla og reykingarstybba á neðri hæðinni... Þannig það er spurning hvort maður lifi af allt sumarið þarna. Tja, maður fær allavega einhvern pening á þessu.

Í dag skrapp ég í sund með Steinari... Það var bara þægilegt og það kom allt í einu geðveikt mikil sól... Maður vill nú ekki vera einhver næpa úti í útlöndum.

En jæja ég er hérna eiginlega að deyja úr hræðslu... Kemur alltaf eitthvað skrítið hljóð, veit ekki hvort það sé tölvan, einhver bíll úti eða eitthvað allt annað...En ég  reyni bara að láta músikina yfirgnæfa það. En ég er líka að deyja úr þreytu hérna þannig ég ætla að skreppa niður og hengja upp einhvern þvott ef ég hef þor í það og svo fer maður kannski bara í rúmið... jájá ég held það bara. Bless.

Lag dagsins: Lifehouse - Blind


Ahh... hefði ekkert á móti því að henda mér ofan í þessa akkúrat núna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 00:26:27 / bunan

Ökuskólinn - stuð

Jæja mín byrjuð í ökuskóla 1. Fór í fyrsta tímann í kvöld, fokking fjórir tímar... (haha akkúrat þegar ég skrifaði "tímar" var sagt "tími" í laginu sem ég er að hlusta á :lol: ;) En já þetta leið nú samt alveg og kennaranum tókst vel að halda manni vakandi m.a. með því að hlaupa á hurð og herma eftir hinum og þessum atburðum í umferðinni. En já fyrri hluti tímans fór bara í að byggja upp stress fyrir bílprófið, aðallega verklega, og ég verð að fara að læra á öll þessi ljós á mælaborðinu, kann ekkert á þau nema stefnuljósið... Og eins gott að bakkið mitt batni :| Oh well, æfingin skapar meistarann, ekki satt?

Svo er hún Maren útskrifuð núna og ég fór á brautskráninguna á laugardaginn, stuð þar, 212 nemendur að útskrifast þannig maður sat þarna í 3 klukkutíma. En svo tók við veisla hérna heima, öll ættin ásamt nokkrum óskyldum komu og samglöddust. Mikið etið, verð að byrja að hreyfa mig meira. En svo var bara partý heima hjá pabba um kvöldið, allt krökkt af nýútskrifuðum verzlingum en svo komu líka nokkrir anti-verzlingar og meiraðsegja 2 MRingar, held ég. En svo kom bara löggan og læti, kvarta undan hávaða enda var klukkan orðin yfir miðnætti þannig þá róaðist þetta aðeins.

Svo eru þær Emma, Mist og Ísold hérna á Íslandi en eru reyndar að fara eftir tvo daga :( En svo hitti ég þær aftur í sumar :D Þetta verður gott sumar... Vona ég, er enn að leita að vinnu svo að ég hafi eitthvað að gera milli utanlands/Akureyrarferða. Fór í dag með Emmu og sótti um á tveimur stöðum, svo tékkaði pabbi hvort ég gæti fengið eitthvað á Reykjalundi og ég gæti fengið vinnu þar í sundlauginni eða eldhúsinu þannig vonandi enda ég ekki sem atvinnulaus eymingi í sumar :)

Búin að fá einkunnirnar mínar og það gekk bara svona ágætlega, með 7,9 í meðaleinkunn, hækkaði mig um 0,1 síðan á jólaprófunum :P Ennþá lægst í sögunni, kemur svosem ekki á óvart. Sjáum bara hvernig ég stend mig í íslendingasögunum á næsta ári :$

Ohh fjandans bil-takki. Litlu frænkur mínar tóku uppá því um daginn að pilla takka af lyklaborðinu (ég meina það, þetta er í genunum, Vala er líka svona) bilstöngin er búin að vera í ruglinu síðan, þarf alltaf að ýta akkúrat á miðjuna til að hún virki... En ég er svona alveg að komast uppá lag með það þannig þetta ætti að fara að venjast :P

En jæja þetta er farið að verða svoldið löng færsla hjá mér... Kannski maður ætti að fara að slútta þessu, hvort sem er allir sem byrjuðu að lesa þetta örugglega löngu hættir því.

Home alone dagar nálgast, verð alein heima frá miðvikudeginum og alveg fram á sunnudagsnóttina held ég... Svo fer maður bara út á mánudaginn :haha: Það verður æði... Versla, versla, tívolí, tjill og fleira gaman :)


Haha, maður verður að kíkja á þessa kalla í Danaveldi :P

Bless í bili.

Lög dagsins: Bara fullt af lögum með Lights on the Highway. Og All My Friends með Amos Lee.


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 12:16:43 / bunan

Sumarfrí :)

Jæja þá er maður búinn í prófum og kominn í sumarfrí :D

Eftir síðasta prófið á fimmtudaginn hitti ég hana Helenu í bænum og við kíktum aðeins í búðir, ég fann mér sólgleraugu og svo fórum við í Krambúðina og sóttum um vinnu þar. Vona bara að ég fái vinnuna í þetta skiptið :$ Annars fer þetta virkilega að verða vandamál... Verð bara að eignast einhvern pening :( En svo fórum við í Smárann með henni móður minni og ég keypti mér kjól í Zöru fyrir útskriftina hennar Marenar (vó, fyrsta skiptið sem ég kaupi mér kjól síðan ég var svona 10 ára :P) og svo fór ég bara uppí Mosó með Hellu að horfa á Silvíu "okkar" Nótt ekki komast áfram í Eurovision... Var að horfa á eitthvað video með henni þar sem hún var að skíta yfir hina keppendurna og hrækja á mann og annan... Djöfull er ég komin með í kokið af henni. Ef hún hefði bara sleppt þessum stjörnustælum hefði hún léttilega komist áfram. En það þýðir víst ekkert að væla um það.

Horfði svo á Fuglastríðið í Lumbruskógi hjá Helenu og man núna eftir þessari mynd, dýrkaði hana þegar ég var lítil :P Ólavía er skotin í Óliver :lol: Held ég hafi síðast horft á hana þegar ég var svona 5 ára... En svo gisti ég hjá Helenu þarna um nóttina og svo röltum við bara uppí Bónus um morguninn og svo fór ég heim og labbaði ennþá meira, nennti ekki að bíða eftir 14unni þannig ég labbaði bara þaðan sem 15an stoppaði... Dugleg ég, ha :P

Svo fór ég í eitt stykki 3.bekkjarferð yfir nóttina sem var bara nokkuð gaman en svo var það stoppað um nóttina eða morguninn... Vorum komin aftur í bæinn klukkan 7 um morguninn en þá fór maður bara að sofa og ég svaf eitthvað fram á daginn... Fór svo með honum pabba að kaupa einhver blóm til að planta hjá ömmu... Fór svo í smá bíltúr uppí Mosó og aftur niður í bæ til Sifjar og þeirra og horfði á Eurovisionið þar. Bara ágætlega ánægð með að Finnarnir hafi unnið en ekki ein af Austur-Evrópulöndunum.

En jæja ég ætla að halda áfram að taka til hérna inni hjá mér því að Emma og stelpurnar eru að koma Á MORGUN!! :haha: Hlakka svo til, ekki búin að sjá þær í marga marga mánuði...

Lag dagsins: Tori Amos - Only Women Bleed


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 23:57:23 / bunan

eitt eftir!

Nau vó, þriðji dagurinn í röð sem ég blogga. Við erum alveg ægilegar, Helena ;) Betra mörg en stutt blogg heldur en fá og löng? Jah ætli það ekki.

Enskuprófið í dag gekk virkilega illa :( Náði ekki einu sinni að klára það... Hvernig er hægt að ætlast til þess að maður geti klárað þessar 11 blaðsíður á einum og hálfum tíma?! Ég allavega byrjaði á að þýða glósurnar sem ég kunni, þurfti samt að giska á ca helminginn, svo byrjaði ég á þessum ólesna texta en hann var svo mikið rugl að ég ákvað að geyma hann þangað til síðast, hann gilti líka minnst af prófinu. Þannig ég gerði einhverja málfræði og fór svo bara í stílinn sem gekk nú bara ágætlega svosem, nokkur orð sem ég þurfti að giska á... Og svo skrifaði ég einhverja ritgerð um eina smásögu á ca 5 mínútum þannig hún hefur örugglega verið full af villum. Svo var tíminn bara búinn og ég krossaði bara við eitthvað í spurningunum við ólesna textanum, betra að giska en að sleppa... En já ég veit ekki af hverju ég skrifaði þetta allt í svona miklum smáatriðum... Það hefur örugglega enginn áhuga á að vita þetta.. Ég er bara svo ósátt við þetta próf :evil:

En stærðfræðiprófið í gær gekk samt bara vel, enda búin að læra allar sannanirnar og reglurnar og það utanað en svo gilti það reyndar svo lítið á prófinu :| En svo var eitthvað pínu sem ég var í vafa með...

Svo tók ég þetta forpróf í fiðlunni í gær... Það gekk bara svona ágætlega, var bara svo stressuð fyrir prófið... En svo voru þetta allt kennarar sem maður þekkti sem voru að hlusta þannig það var svosem allt í lagi. Gat allavega spilað bæði lögin án þess að detta eitthvað út... Þannig núna er maður tjah, næstum því kominn í sumarfrí úr tónskólanum :) Bara eitt hljómfræðipróf eftir sem ég tek held ég á mánudaginn næsta... Ohh ég nenni svo ekki að taka það, tekur alveg ca 3 tíma að taka eitt svona próf 8| Ömó... En svo seinna þennan sama dag koma Emma og stelpurnar til landsins :haha: Ahh ég get ekki beðið :D Þær verða hérna í ca 10 daga held ég, yfir útskriftina hennar Marenar... Ohh þetta verður frábær byrjun á sumarfríinu :)

En jæja ég ætla að koma mér í rúmið, vakna snemma til að halda áfram með la francais ;)

Au revoir!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 12:20:22 / bunan

Stærðfræðipróf...

Hellú...ég hef ekkert að gera... Stærðfræðiprófið byrjar eftir klukkutíma og ég er held ég búin að læra alveg nóg fyrir það... Best að hvíla sig aðeins á tölunum áður en maður þarf að reikna milljón dæmi aftur :$

Já svo er ég bara með í maganum, samt eiginlega ekki útaf stærðfræðiprófinu heldur er ég að fara beint eftir það próf í fiðlupróf... forpróf fyrir 6. stig... tek svo 6. stigið í haust held ég... En ég þarf nú reyndar bara að spila tvö stutt lög og kann þau svosem alveg utanbókar en ég er samt að deyja úr stressi :( Ohh ég hata að spila fyrir áhorfendur...

Já ég hef nú bara eiginlega ekkert að segja... aldrei þessu vant :P Það eru nú líka bara tveir dagar síðan ég bloggaði...

Í gær þá var ég bara eitthvað að læra... Fór svo í sund með henni Maren... Hvað annað :P Já það voru nú samt ekki eins margir og á laugardeginum... En svo var einhver franskur kall þarna og hann talaði svo flotta frönsku :) Svo var kona með honum sem var greinilega íslensk en við maren föttuðum það ekki fyrst því hún talaði frönsku við kallinn... Föttuðum það svo sem betur fer þannig við hættum að tala um þau :P En já mig langar svo að geta talað frönsku reiprennandi... Ahh það mun vonandi gerast einhverntíman á næstu árum :)

Svo verður maður víst að fara að drífa í að finna föt fyrir útskriftarveisluna hennar Marenar... Hún fann sér kjól í gær og sagði að það væru nokkrir kjólar í Zöru sem ég gæti kíkt á... Reyni að komast þangað á morgun eftir ökutíma :) Ah já það minnir mig á það að ég þarf að fara að lesa eitthvað í þessari ökubók... Gaman gaman.

En jæja ég er að hugsa um að hafa þetta ekki lengra. Enda á einu góðu lagi bara :)

Edwin McCain - In Your Eyes


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 00:13:25 / bunan

Varúð...langt blogg

Kæru vinir, prófum fer brátt að ljúka. Jees 3 eftir af þessum 10 skítaprófum...ohh ég er komin með svo mikið leið á þessum fj* prófum að mig langar helst að brenna stærðfræði- og enskubækurnar mínar og sleppa því að læra fyrir það. Reyndar er franska líka eftir en það er þó skárra en stæ. og enska...

Annars hafa prófin gengið bara misvel... Byrjaði á eðlisfræðinni sem gekk vonum framar, ágætt að enda þessa blessuðu eðlisfræði á svona góðu prófi :) Enda lærði ég alveg slatta mikið fyrir það...

Svo var íslensk ritgerð næst, ég skrifaði um Sumarfrí á sólarströnd, skrifaði einhvern slatta, alveg út í síðustu línu... Já kemur í ljós hvort kennaranum líki skrifin mín eður ey :$

Svo voru íslensk fræði næst, og setningarfræði sökkar. Gilti heilan helling af prófinu og var slatta erfið, og setningagreiningin var öll í rugli hjá mér... Langar helst ekki að hugsa um það.

Söguprófið var næst, uppáhaldsfagið mitt (not). Það gekk bara eins og flest sögupróf hafa gengið hingað til hjá mér. Gat reyndar helling af krossum, en restin... tölum ekki um hana. Bara smáatriði og smáatriði... Arg.

Jarðfræðin var svo á miðvikudaginn síðastliðinn og gekk bara svona lala... Langt próf og hver spurning gilti bara svona 4%... Get þess vegna lítið spáð í hvernig einkunnin mín mun líta út.

Svo var danska síðust og það var nú ansi þungt próf fannst mér :| Ólesni textinn og glósurnar voru frekar erfiðar... Og náði bara rétt svo að klára prófið... ojæja.

Svo er það stærðfræðin á mánudaginn... Jess. Er búin að glósa 5 reglur hjá mér, bara svona 30 eftir. Looking forward to tomorrow...

En svo er maður búinn að gera ýmislegt til að stytta sér stundir á þessum sorglegu tímum í lífinu. Byrjuð að stunda sund aftur af kappi, fór í sund þrjá síðustu daga í góða veðrinu :) Alltaf gaman að nýta sér sólina... Keypti mér meiraðsegja nýtt sundkort í dag... jább búin að klára það gamla... sniðugt að hafa svona kort, sparar heilan 800 kall á hverjum 10 skiptum sem þú ferð í sund ;) en nóg um auglýsingar...

Ég fékk nú komment frá ónefndri manneskju í gær að bloggin mín væru svo löng að það nennti enginn að lesa þau... Kannski það sé eitthvað til í því. Kemur stundum slatti af heimsóknum inná þessa síðu en eitthvað minna er um kommentaiðju eða gestabókarkvittanir... Kannski maður reyni að stytta þessi blogg sín einhverntíman...  Good luck to me.

En ég verð nú aðeins að segja frá mínum fyrsta ökutíma 8) Ójá mín loksins komin útá götu við sýrið :D Fór í fyrsta tímann minn á þriðjudaginn og það gekk bara svona ágætlega... Kallinn kom og sótti mig og svo talaði hann í hálftíma um hvar vélin væri og hvernig kúplingurinn virkaði og svona. Man reyndar ekkert svakalega mikið af því sem hann sagði nema það að bremsurnar virka fyrir vökva :P Hehe alltaf lærir maður eitthvað nýtt... Svo var ég bara látin keyra um hverfið... Sem betur fer var lítil umferð þannig ég stefndi engum í of mikla hættu :klikk: Drap aldrei á bílnum nema stundum á ljósum, á fyrstu ljósunum varð ég svo stressuð þegar ég átti að keyra aftur af stað og kom bara bílnum ekkert af stað og það kom svo fljótt rautt aftur... Bílaröð fyrir aftan mig en það bibaði samt enginn á mig, allir voða kurteisir við nemandann :lol: Jájá einhverntíman voru allir nemendur... En já svo fer ég í næsta tímann á þriðjudaginn og ég get bara varla beðið, langar svo út að keyra :P Er samt ekki alveg að nenna þessum ökuskóla... 4 og hálfur tími fyrsta kvöldið 8| svo styttist það um skitinn hálftíma næsta kvöld. Já ætli maður taki sér ekki tíma í þetta í sumar... Verð svo bara að klára þetta sem fyrst, draumurinn náttúrulega að geta komist á minn eiginn bíl strax eftir að skólinn byrjar :)

Í gær hitti ég hana Helenu eftir prófið mitt og við fórum á kaffihús í góða veðrinu.. Café Paris varð fyrir valinu og maður var nú ekkert í vonbrigðum...nema kannski með "hressa" fólkið á næsta borði, klukkan var 3 um miðjan dag, róleg á að byrja snemma... Já svo lentum við bara í útlendingum sem voru að vinna þarna og töluðu enga íslensku :P Hehe en þeir voru samt voða almennilegir. Já svo löbbuðum við aðeins um í bænum og fórum svo í sund, of course, og svo fór ég bara með henni uppí Mosó um kveldið, alltaf gaman að fara þangað... Skruppum í heimsókn til Silju og viti menn, hún var akkúrat nýbúin að fá trampólín og ég sem var búin að láta mig dreyma um trampólín allan daginn... Ahh þarna fékk ég loksins aðeins að missa mig :) Svo var rétt kíkt í eitthvað partý en það var nú búið snemma þannig ég fór bara heim... Fékk nokkar myndir hjá helenu sem maður kíkir kannski á næstu daga :)

Já heyrðu svo er maður bara losnaður við alla vírana og draslið úr munninum á sér...finally...bara gómurinn eftir. Fékk viðurkenningarskjal frá tannsanum og alles :P

Svo fór ég í eitt starfsviðtal á Hrafnistu... En er bara ekkert búin að heyra frá þeim síðan þannig kannski þau hafi bara skipt um skoðun...Iss þau vita ekki af hverju þau eru að missa :klikk: En já maður er semsagt enn þá atvinnuleysingi en ég var rétt í þessu að sækja um hjá Mogganum... Já allt verður nú að koma til greina núna þessa stundina, maður verður nú að fá einhvern pening í sumar...

En jæja ég held að þessi "ónefndi aðili" hafi haft rétt fyrir sér, ég skrifa allt of langar bloggfærslur... Enginn nennir að lesa þetta rugl. Kannski ég kaupi mér bara dagbók. Með lás og lykli og allt. Eins og maður átti þegar maður var 9 ára :) Ah góðir tímar... Já þar gæti ég talað við sjálfa mig eins og ég vil og enginn þyrfti að kvarta undan of mikið af pælingum og rugli...

Já ég er semsagt farin að sofa og gangi ykkur vel í prófunum sem eftir eru, og þið sem eruð búin í prófum: öfund.

Lag dagsins: Lights on the Highway - Jameson's State


Sá draumabílinn minn um daginn, ekki ósvipaður þessum, ímyndið ykkur hann að framan, ekta svona gamla-bíómyndabíll, rauður auðvitað og bara tveggja sæta...Draumur í dós.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5